Lýsing
Redmi Note 9S er nýjasti síminn í Redmi línunni frá Xiaomi en hann fylgir eftir hinni geysivinsælu Redmi Note 8 línu. Redmi Note 9S skartar björtum og stílhreinum skjá með "Dot-Display" sem er magnað fyrir síma með LCD skjá. Síminn er með frábæra sjálfu myndavél og 48MP aðal myndavél.
Frábær skjár
Það sem einkennir Redmi Note 9S er það fyrsta sem þú sérð, skjárinn. En hann er ótrúlega flottur fyrir síma í þessum verðflokki. Síminn skartar björtum og flottum 6.67" skjá með 1080 x 2400 upplausn. Redmi Note 9S er með Corning Gorilla Glass 5 skjá sem verst vel gegn rispum og er sterkbyggður og áreiðanlegur. Skjárinn er 450 nits í venjulegri notkun.
Skvettuvörn
Redmi Note 9 Pro er með P2i skvettuvörn sem gerir hann sterkari gegn bleitu og rigningu. Síminn notfærir sér nanóhúðar-tækni til að tryggja að tækið þitt sé varið gegn kröftum náttúrunnar. Síminn er ekki vatnsheldur og við mælum ekki með að fara með hann í sund eða skola hann í sturtunni en þú ættir ekki að þurfa að hafa áhyggjur af honum ef það skvettist á hann vatn.
Áreiðanleg rafhlaða!
Rafhlaðan í Redmi Note 9S er frábær og ætti að endast venjulegum notanda í 2 daga á einni hleðslu! Síminn er með 5020mAh rafhlöðu og styður við 18W hraðhleðslu þannig að þegar síminn tæmist er notandinn fljótur að fá fulla hleðslu á hann aftur og byrja að nota hann aftur.
All í allt er Redmi Note 9S frábær sími með fínustu myndavél, frábæra rafhlöðu og þú færð einfaldlega ekki betri síma á þessu verði í dag!
Í kassanum fylgir:
- Hleðslutæki
- Sílikon hulstur
- Leiðarvísir
Tæknilegar upplýsingar:
General
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Screen
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Camera
|