Search
Search

Mi Electric Scooter Pro 2 rafmagnshlaupahjól

89.990 kr.

  • 100 kg burðargeta
  • Hármarkshraði 25 km/klst
  • Allt að 45 km drægni
  • 300W (600w hámarksafköst) mótor, kemst upp allt að 20° halla
  • 14.2kg að þyngd og samanbrjótanlegt
  • IP54 vatnsvarið
  • E-ABS og tvöföld diskabremsa
  • 3 hraðastillingar
  • Kemur á 8.5″ dekkjum með slöngu

Ekki til á lager

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Vörunúmer: D1099

Electric Scooter Pro 2 rafmagnshlaupahjól

600W

Hámarksafköst

45km

Drægni

25km/klst

Hámarkshraði

3 sekúndur

Samanbrjótanlegt

8.5″

Loftfyllt dekk

Mælaborð sýnir allar helstu upplýsingar

Sterkbyggt stell úr endingargóðu og léttu efni

E-ABS +
tvöföld diskabremsa

Samanbrjótanlegt og auðvelt í flutning

Scooter Pro 2 vegur 14.2kg og er samanbrjótanlegt. Þegar hjólið er samanbrotið festist stýrið við afturdekk svo að stýrishálsinn verður í raun eins og handfang. Það er því einstaklega þægilegt í flutning á milli staða, hvort sem það er í strætóvagni eða bílskotti.

Kröftugur mótor með mikilli hröðun

Scooter Pro 2 er með kröftugum burstalausum mótor með hámarksafköst í 600W. 

600w

Hámarks afköst*

20%

Klifurgeta

25

km/klst hraði

*Í viðvarandi keyrslu er mótorinn 300W, en við hámarksafköst er mótorinn 600W

Þrjár hraðastillingar

Til að skipta á milli hraðastillinga er smellt tvisvar á stjórntakkann í mælaborðinu

Walk

5-6 km/klst

Drive

5-20 km/klst

Sport

5-25 km/klst

Kemst langt á einni hleðslu

Scooter 2 Pro er með stórri lithium rafhlöðu sem skilar jöfnum krafti í mótorinn með einstaklega langri drægni eða allt að 45 km á einni hleðslu. Full hleðsla tekur 8-9 klukkustundir.

Uppfært BMS

Scooter 2 Pro er með uppfærðu BMS rafhlöðustjórnunarkerfi (e. battery management system). Þessi 5. kynslóð BMS er með 6 varnir til að halda rafhlöðu hlaupahjólsins öruggri og endingargóðri.

Skammhlaups vörn

Yfirstraumsvörn

Yfirhleðsluvörn

Ofhleðsluvörn

Hitastigsvörn

Undirspennu vörn

Endurheimtir orkuna

Kinetic Energy Recovery System eða KERS hefur verið tekið algjörlega í gegn og orkuendurheimtin verið betrumbætt. Öll orka sem kemur til við hemlun og akstur án inngjafar safnast saman og er breytt aftur í notanlega orku til að auka enn við drægni hjólsins. Í Xiaomi Home appinu er hægt að stilla hversu mikið inngrip KERS hefur í akstri.

Bremsar að framan og aftan

Styttri hemlunarvegalengd fyrir aukið öryggi

Á afturdekkinu er stór bremsudiskur með aukna bremsueiginleika, að framan er E-ABS endurheimtunarbremsa. Þegar tekið er í handbremsuna virkjast bremsurnar saman til að stytta hemlunarvegalengdina og tryggja öruggt stopp.

Uppfærð 8.5″ loftfyllt dekk

Meiri þægindi, minni titringur

Dekkin hafa verið uppfærð frá fyrri kynslóð og þola töluvert meira hnjask. Þegar passað er uppá loftþrýsting í dekkjunum veita þessi uppfærðu dekk meiri akstursþægindi og minnka líkur á að springa.

2W bjart akstursljós

Þægileg aksturslýsing fyrir minni birtuskilyrði

Akstursljósið er bjart og öflugt og bætir til muna lýsingu þegar dimmt er úti, auk þess að auka öryggi þegar ekið er við minni birtuskilyrði. Ljósið beinir niður á við og blindar því ekki aðkomandi vegfarendur.

Uppfært bremsuljós

Stærra og bjartara

Þegar kveikt er á framljósinu kviknar einnig á bremsuljósinu, þegar tekið er í handbremsuna blikkar bremsuljósið til að vara aðra við. Bremsuljósið er einnig með innbyggt endurskin til að auka öryggi.

Meiri endurskin, meira öryggi

Fram, hlið og aftur endurskinsmerki

Búið er að bæta við endurskinsmerkjum fyrir aukið öryggi. Endurskinsmerki eru nú að framan, að aftan og á hliðum rafmagnshlaupahjólsins.

Snjallari ferðalög

Skoðaðu upplýsingar um ferðirnar þínar, hversu marga kílómetra hjólið kemst áður en það verður batteríslaust, villumeldingar og fleira til í Xiaomi Home appinu*

Staða

Læsing**

Orkuendurheimt

Uppfærslur

Bluetooth

*Fyrir fyrstu notkun þarf að virkja hjólið í gegnum Xiaomi Home appinu
**Hægt er að læsa mótor hjólsins í 4 tíma í senn