Lýsing
Innsigli rofið en sími alveg ónotaður og í óaðfinnanlegu standi. Tveggja ára ábyrgð.
Hann er loksins kominn! Mi Note 10 Lite er nýjasti síminn í Mi Note 10 línunni frá Xiaomi. Öflugur sími með skörpum skjá, stílhreinni hönnun og afkastamiklum örgjörva. Með 64MP quad myndavél símans nærð þú fram stórkostlegum myndum, hvort sem um er að ræða hversdagslegar ljósmyndir af eftirréttinum á stefnumótinu, nærmynd af hundinum þínum eða landslagsmyndir úr sumarbústaðnum. Ekki nóg með það heldur skartar Mi Note 10 Lite endingarmikilli og áhrifamikilli rafhlöðu sem endist auðveldlega í 2 daga af notkun.
Frábær rafhlaða
Mi Note 10 Lite er með ótrúlega stóra og endingargóða rafhlöðu en síminn skartar 5.260mAh rafhlöðu sem styður við 30W hraðhleðslu. Síminn er gerður til að endast í langan tíma og vinnur rafhlaðan vel með örgjörva símans til að ná sem mestu út úr rafhlöðunni.
Skarpur 6.47” kúptur skjár
Á símanum er frábær 6.47" kúptur skjár sem er úr Corning® Gorilla® glass 5 en bæði skjárinn og bakhlið símans eru úr þessu sterkbyggða gleri. Skjár símans er kúptur á hliðunum til þess að síminn passi sem best í hendi notandans og til að bæta upplifun þess sem notar símann.
Ótrúleg myndavél
Til þess að kóróna frábæra eiginleika símans þá er Mi Note 10 Lite með eina öflugustu myndavél á markaðnum í dag en síminn er með 64MP Quad myndavélakerfi sem gerir það að verkum að þú getur tekið stórkostlegar myndir í hvaða aðstæðum sem er! Mi Note 10 Lite er með 64MP aðal linsu sem tekur skarpar og flottar myndir. Einnig er síminn með 8MP víð-linsu sem bíður upp á skemmtilegar myndir, svo er líka 2MP Macro linsa fyrir þessar "up close and personal" myndir.
Tæknilegar upplýsingar:
General
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Screen
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Camera
|