
Lýsing
Mi True Wireless Earbuds Basic munu örugglega breyta því hvernig þú notar heyrnartól!
Einfaldleiki og tækni sameinast á einstakan hátt og útkoman er töfrum líkust.
Við fyrstu notkun eru heyrnartólin tengd við símann eða tölvuna á einfaldan hátt. Að því loknu þarf einungis að taka þau úr hleðsluboxinu og við það kveikja þau á sér og tengjast tækinu þínu sjálfkrafa.
Þú stýrir aðgerðum með því að nota takka á heyrnatólunum meðan þú ert með þau í eyrunum og getur þannig svarað símtölum og margt fleira. Þú getur einnig tengt þig við Google Assistant ef þú ert með Android síma eða Siri ef þú ert með Apple síma og notað raddstýringu til þess að framkvæma aðgerðir.
Hljóðnemarnir á heyrnatólunum eru með búnað sem tryggir að þeir nái röddinni þinni sem best, en útiloki sem mest af umhverfishljóðum. Þetta á einnig við þegar hlustað er á tónlist, heyrnatólin sía út umhverfishljóð svo þú heyrir betur.
Allt er þetta gert til að gera upplifun þína sem þægilegasta og ekki hvað síst til að færa þér fínustu hljómgæði.
Athugið að ekki fylgir hleðslusnúra með heyrnatólunum en eina sem þarf til þess að hlaða þau er Micro-USB hleðslusnúra.
Earbuds
Dimension |
26.65 x 16.4 x 21.6 mm |
Net Weight | 4.1 g (per earbud) |
Wireless Range | 10m |
Battery Capacity | 43 mAh (per earbud) |
Charging Time | Approx 1.5h |
Talk Time | Approx 4h |
Standby Time | Approx 150h |
Input | 5v=100mA |
Battery Type | Lithium Polymer |
Wireless Connectivity | Bluetooth 5.0 |
Bluetooth Profiles | HFP/A2DP/HSP/AVRCP |
Charging Case
Dimension | 62 x 40 x 27.2 mm |
Input | 5V = 500mA |
Output | Approx 2h |
Charging Time | Approx 2h |
Standby Time | Approx 4 months |
Battery Capacity | 300 mAh |
Battery Type | Lithium Polymer |