
Lýsing
Mi Robot Builder Rover er eitt flottasta leikfangið frá Xiaomi í dag.
Í pakkanum fylgja leiðbeiningar og kubbar til þess að setja saman þitt eigið vélmenni í allt að sex mismunandi útfærslum. Hægt er að forrita hann til þess að keyra, beygja eða stoppa í ákveðinn tíma eða bara stjórna honum með fjarstýringu, allt í gegnum Mi Robot Builder appið.
Að meðaltali tekur um 30-60mín að setja saman róbótinn sem er búinn til úr yfir 1000+ kubbum. Mælt er með því að foreldrar aðstoði börn undir 12 ára við samsetningu þar sem margir partar eru mjög smáir.
Miðað við leikfang eru eiginleikar vélmennisins magnaðir:
- 32-bit ARM Cortex Mx örgjörvi með 108MHz
- 32Mb Flash minni
- Bluetooth 4.0 tenging og 2.4GHz þráðlaus stuðningur
- 11.1V/18.3Wh lithium rafhlaða sem gefur 12 klst. endingu í biðstöðu
- Innbyggður 'gyroscope'
- App stýring með stuðning við Android 4.3 og nýrra og IOS 6.0 og nýrra