
Lýsing
iMiLab EC3 er bráðsnjöll öryggismyndavél sem er besta vörnin gegn þjófum í dag! Þessi öryggismyndavél er gjörsamlega ómissandi á öll snjallheimili og hentar sérstaklega vel fyrir bústaðinn!

Myndavélina þarf einungis að tengja í rafmagn þar sem hún sendir myndefnið í gegnum þráðlaust net yfir í farsímann þinn eða tölvuna. Myndavélin getur svo látið þig vita með tilkynningu í símann ef hún skynjar hreyfingu og byrjar hún á sama tíma að taka upp.
iMiLab EC3 er IP66 vatnsheld og þolir þar af leiðandi nánast allt sem móðir náttúra hendir í hana og hentar því mjög vel fyrir íslenskar aðstæður. Vélin þolir mikið frost og mikinn hita eða allt frá -20°C og að 60°C.
Myndavélin tekur upp myndefnið í Full HD (1920 x 1080 px) og er vélin einnig búin sérstakri "lita nætursjón" sem gerir þér kleift að sjá liti enn bjartari og skýrari við lítil birtuskilyrði.
Þökk sé víðlinsunni í iMiLab EC3 mun ekkert fara framhjá þér en hægt er að snúa myndavélinni til hægri og vinstri, upp og niður og ná þannig 270°. Með innbyggðum hljóðnema og hátalara getur þú hlustað úr myndavélinni ásamt því að tala í gegnum hana.
Tæknilegar upplýsingar
Brand | IMILAB |
Model | CMSXJ25A Global |
Resolution | 1920*1080P |
Aperture | F1.6 |
Input | 12V/1A |
Voltage | 220V |
Working Temperature | -20Deg.C - 60 Deg.C |
Video Coding | H.265 |
Wireless Connect | Wi-Fi IEEE 802.11 b/g/n 2.4GHz |
Wireless Connect | 1 * 10/100M Network Port |
Support OS | Android 4.4 or iOS 9.0 and above system |
Package Contents | IMiLab EC3 Outdoor Security Camera power adapter, wall mounting pack, waterproofing tape for power/LAN cable, user manual |