Lýsing
Mi Smart Electric Folding Bike er lítið og nett rafmagnshjól útbúið fullt af snjöllum eiginleikum. Einfalt er að brjóta hjólið saman og því fullkomið borgarhjól sem auðvelt er að stinga í skottið á bílnum.

Hjólið er búið öflugri Panasonic 18650 mAh Li-ion rafhlöðu sem er samskonar rafhlaða og hinir byltingarkenndu Tesla bílar notast við. Á fullri hleðslu kemst hjólið allt að 45 km og nær 20 km/klst hámarkshraða án þess að hjólað sé.
TMM4 Torque Sensor tæknin tryggir fullkomið samspil milli hjólsins og notanda þess með því að skynja hreyfingu pedalana og 250W mótorinn á framhjólinu vinnur samkvæmt því í samræmi við notandann.

Á stýrinu er skjár þar sem þú getur nálgast upplýsingar svo sem hraða, vegalengd og stöðu rafhlöðu. Þar getur þú einnig valið milli mismunandi stillinga og ákvarðað hversu mikið mótorinn vinnur til móts við notandann. Hjólið er létt og fyrirferða lítið en það vegur aðeins 14.5 kíló.
Nú er hægt að tengja hjólið við Xiaomi Home appið og fylgjast með stöðunni, hversu marga kílómetra þú hefur ferðast á hjólinu, athuga rafhlöðu prósentu o.fl.
Tæknilegar upplýsingar
Model | XMDZLZXC01QJ |
Material | Aluminum Alloy |
Motor Rated Power | 250W motor |
Battery type | 18650 lithium-ion battery pack |
Battery capacity | 5.800mAh / 208.8Wh |
Charge Time | ~3 hours |
Maximum Distance | 45km (with motor only) |
Maximum Speed | 20km/h (with motor only) |
Max Payload | 100 kg |
Wheel size | 16" |
Control dial screen size | 1.8" |
Connectivity | Bluetooth 4.0 BLE |
Product Weight | 14,5 kg |
Package includes | 1 x Mi Smart Electric Folding Bike 1 x Wrench 1 x Charger x English Manual |